Lífsbókin

Ævintýri kennslukonu

13.03.2010 16:26:33 / Jóhanna

Viðburðarík vika......

senn á enda, mest þó góðar stundir með skemmtilegum vinum og ekki allt búið enn......... :haha::haha:
Svo er frúin komin á virðulegan aldur þó svo að andinn sé enn 23 ára :klikk:

Mér tókst nú að mæta ræktina einn morgun fyrir klukkan 7. Lagði ekki í fleiri tilraunir þar sem krankleikinn herjar enn á mig....en það stendur til bóta ;)  Leið samt mjög vel eftir puðið, veit vel að það hentar mér best að fara snemma, ekkert nýtt undir sólinni. Mun fara í ræktina eftir vinnu einhverja daga í næstu viku og svo er um að gera að nota góða veðrið og fara í myndarlega göngutúra. Einn slíkur er einmitt á dagskrá á morgun.
Svo er meiningin að fara í gott dekur suður með sjó í vikunni og jafnvel eitthvað fleira þegar nær dregur næstu helgi.

Sem sagt allt í góðu á mínum bæ. 




» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2010 17:55:54 / Jóhanna

Jæja, er ekki kominn tími á smá......

blogg elskurnar mínar. Sé að það eru alltaf  nokkrir sem kíkja á síðuna mína daglega og á meðan það varir verð ég að standa mig, er það ekki ???? 

Áttum stórfina helgi í Hálsasveitinni um síðustu helgi, karlarnir fóru hamförum í smíðavinnu á loftinu og við stelpurnar höfðum það virkilega huggulegt á neðri hæðinni.
Síðasta fimmtudag skelltum við okkur í leikhús og sáum Fjölskylduna í Borgarleikhúsinu. Mögnuð sýning þar á ferð, það er ekki oft sem maður sér svona flotta sýningu. Mæli heilshugar með henni. Fengum okkur snittur og drykki í hlénu og það var virkilega notalegt.

Annars lítið að frétta þannig séð, lífið er lítið annað en vinna og endalaus þreyta þessa dagana. Smá krankleiki að hrjá mig en ekkert alvarlegt á ferðinni. Ætla samt ekkert að fara nánar í það hér. Af Þeim sökum hef ég lítið farið í ræktina undanfarið og það fer nú ekki vel í mig :whut::whut:  Ætla samt að prófa í næstu viku að fara snemma á morgnanna, a.m.k. þrisvar. Bara verð að komast, þar  sem engin orka er eftir vinnudaginn er möguleiki að vera búin að hreyfa sig áður en vinnudagurinn hefst og þannig hægt að nýta orkuna betur. Það má þá alltaf fá sér smá kríu eftir vinnu. Mér finnst það þess virði að prófa.........

Í næstu viku er meiningin að hitta tvo vinahópa, Nauthóll á mánudagskvöld með Kennóskvísum og saumó á miðvikudagskvöld með Kvennóskvísum :p:p  Bara gaman, kannski betra að dreifa þessu aðeins betur en hvað um það. Svona er þetta stundum ;);)

Helgin stefnir í að verða með besta móti...búin að fara í búðina og versla, kjósa rétt, taka til með dyggri aðstoð  húsbóndans og svo er spurning með morgundaginn 8)
Hafið það gott krúttin mín, læt ykkur vita hvernig gengur. Knús í hús :lol:

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2010 21:46:37 / Jóhanna

Tókst ekki en reyni aftur....

ekki spurning :!::!::!: 
Það sem gerðist: Vaknaði á sunnudagsmorgni hálfslöpp og þar sem eiginmaðurinn elskulegur var lasinn tók ég lífinu með ró og las bara Stig Larsson i bólinu og hafði það huggó :klikk:  Á mánudeginum var heilsan fremur bágborin, kvef, slappleiki og hálsbólga höfðu hreiðrað um sig  og neituðu að fara og ég var frá vinnu í 3 daga. Frekar fúlt, ekki síst vegna þess að einmitt þessa viku var meiningin að fara í ræktina fyrir vinnu en svona fór með sjóferð þá. Ætla nú samt að prófa þetta aftur, næst þegar ég er á 9-17 vaktinni :haha::haha:
Annars bara dugleg að fara i ræktina núna enda öll að hressast. Ætla aðeins á kíkja á þessa snöggálagsþjálfun, þar sem þjálfað er hratt og rólega til skiptis í 30 mín t.d.
Hægt væri að stilla brettið á skokk í 60-90 sek og svo göngu 2-3 mín á milli. Eflaust hægt að gera þetta á fleiri tækjum. Elsku þrekstiginn í WC býður jafnvel uppá eitthvað svona, þarf að kanna það ;););)

Í gær, sunnudag fórum við hjónin á bókamarkaðinn og ætluðum að fá okkur kaffi í Perlunni en þar var allt fullt, sem betur fer segi ég !!!! Við fórum á nýja Nauthól,sem er komin í mikið uppáhald  hjá mér. Þar var allt fullt út úr dyrum. Gaman að sjá hvað margir voru að koma inn eftir gönguferð í Nauthólsvíkinni. Við vorum reyndar ekki í þeim hópi en úr því verður bætt fljótlega.  
Njótið lífsins elskurnar mínar, það munar svo mikið um aukna birtu fyrir sál og kropp.
Út að labba !!!!! 

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2010 12:43:31 / Jóhanna

Endurnýjaði samband mitt við........

þrekstigann í ræktinni í morgunn :klikk:  Dúndurgott tæki og þar púlaði ég í heilar 50 mínútur ;)  silld. Hef ekki notað hann mikið lengi en nú skal sko gengið upp stiga úje. Ef eitthvað er að marka þá gekk ég upp 100 hæðir. Já reynið þetta góðir hálsar :haha:

Í næstu viku er meiningin að mæta snemma í ræktina  og þá meina ég snemma. Þannig er að vinnutíminn minn er breytilegur.  þannig að eina vku vinn ég frá 8-16, þá næstu 8:15-16.15 og svo kemur sú erfiðasta eða frá 9-17. Þannig rúllar þetta en það er einn galli á þessari 9-17 viku, ég hef ekki treyst mér til að fara í ræktina eftir vinnu þá daga sem ég er til kl 17. Er bar alveg búin á því. Þannig að í næstu viku ÆTLA ég að keyra eiginmanninn í vinnuna kl. 6.30 og mæta síðan í ræktina og púla þar. Þannig næ ég að fara heim tímanlega, fá mér  í svanginn, skreppa í sturtu og mæta hress í vinnuna kl. 9. Hvernig líst ykkur á það ????
Hef svo sem mætt í ræktina fyrir vinnutíma áður en þá var stöðin í næsta húsi og ég litlar 2 mínútur að labba heim. Það var veturinn þegar ég fór í spinning kl. 6.15 þrisvar í viku :p:p:p   Mikið væri ég til í að hafa World Class hér í bænum......helst í næsta húsi bara  andvarp 8|8|

Leyfi ykkur að fylgjast með og gef skýrslu í lok vikunnar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.02.2010 23:47:44 / Jóhanna

Hvar eða hvenær eru......

þínar gæðastundir kæri lesandi ??

Fyrir utan það að að eiga góðan tíma með fjölskyldu og vinum er góð æfing í ræktinni í sérstöku uppáhaldi þessa dagana. Þar sem ég bý við nær stöðugt áreiti smáfólks í vinnunni er ómetanlegt að labba af stað í ræktina, með Ipodin í eyrunum og  taka síðan vel á því þegar í World Class er komið.
Klárlega minn tími, ekki okkur vafi.
Eftir góða æfingu kemur svo eiginmaðurinn beint úr vinnunni og sækir sína uppgefnu, en alsælu frú og saman brunum við heim.


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.01.2010 20:47:33 / Jóhanna

Loksins dottin í...........

lestrargírinn aftur eftir nokkurt hlé. Bókaormurinn sjálfur hefur verið sérstaklega lélegur í þessari annars uppáhaldsiðju. Betri slökun er vandfundin.
Best er hún reyndar eftir góðan göngutúr eða púl í ræktinni.
Einhverra hluta vegna hef ég ekki fest mig við bókina Karlar sem hata konur, sem liggur á náttborðinu. Reyni aftur seinna.  Var búin að lesa tvær nýjar bækur, Í forheimskunnarlandi og Karlsvagninn. Báðar býsna góðar. Í gærkvöldi fékk ég svo lánaða bókina Kirkju hafsins, sem er óneitanlega nokkuð spennandi lesning. Svolítið sérstakt að detta inn í heim Katalóníubænda á 14. öld.  ;););) 

Nokkuð ljóst hvað ég geri eftir vinnu og hreyfingu næstu vikurnar, bókin er jú heilar 620 bls. :haha::haha:

Hafið það sem best krúttin mín og passið ykkur að fjúka ekki um koll í rokinu  :klikk::klikk:
 

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2010 13:29:56 / Jóhanna

Mikið rosalega....

var nú gott að skella sér í ræktina í morgunn :haha::haha: :haha:  Notaði tækifærið og skutlaði yngri syninum í sína helgarvinnu og  ók svo beint í ræktina eða WC í Hafnarfirði, það er klárlega mín stöð. Bara best að byrja daginn á þessu og svo er bara afslöppun þar til eiginmaðurinn kemur heim úr vinnu. Svona eiga laugardagar að vera ;););) 

Það er nefninlega svo með mig að ég er duglegust að fara í ræktina á laugardögum þegar hann er ekki viðlátinn, hef einhvern veginn ekki móral í að fara þegar hann er heima. Hann er einn af þessum sem vill alls ekki fara í ræktina en finnst  allt í lagi að ég fari.  . Mér tekst nú samt að fá hann með mér út að labba og í einstaka hjólatúr:klikk::klikk:

Það er svo misjafnt hvað fólk er duglegt að hreyfa sig og alveg ljóst að sumir hafa meiri þörf en aðrir, þannig er það bara og svosem allt í góðu, nema kannski þegar heilsan bilar hjá þeim sem minna hreyfa sig. Þá þurfa nú margir að breyta sínum hugsunarhætti varðandi  hreyfingu.

Þessi yndislega vellíðunartilfinning sem maður fær eftir góðan göngutúr, hjólaferð eða ræktina virðist ekki heilla alla eða hvað  ????? 
Það er ekki margt sem toppar þá tilfinningu  :p

Sjá mynd í fullri stærð




» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2010 22:41:32 / Jóhanna

Föstudagskvöld.....

sem merkir bara eitt, helgarfrí í heila 2 daga. Ekki slæmt :klikk: :klikk  Það góða við janúar og febrúar er að það er dimmt úti, oft vont veður og þá er góð afsökun að hanga inni og hugga sig. Mér leiðist það nú ekki.

Jólin komin ofaní kassa, alltaf jafn dapurlegt, en áður en við vitum af verða kassarnir komnir upp aftur og við önnum kafin við að ná í jólaskrautið og gera jóló.
Trúið mér :$:$ Tíminn líður svo ógnarhratt. Ég reyni nú stundum að kaupa flott kerti eða annað  sem puntar uppá þegar jólin eru búin, hef enn ekki keypt neitt.... en aldrei að vita hvað gerist.

Rétt fyrir jólin gerði ég samning um starfslok á leikskólanum, já þið lásuð rétt. Starfslokin eru ákveðin og frúin fer í sumarfri þ. 1. júlí  :lol::lol::lol:  Hlakka mikið til.
Niðurtalning er einmitt hér á síðunni.  

Þrátt fyrir óvissu um framhaldið (aðra vinnu) er ég brjálæðislega bjartsýn, enda ekkert annað í boði. Það bjargast ;););)

Ætla að hafa það verulega náðugt um helgina, á ólesinn reyfara uppá ca 500 síður, veðrið bíður ekki uppá mikla útiveru á laugardag þannig að það verður bara lestur og notalegheit. Tölvukrúttið mitt fer í detox, algjöra yfirhalningu, en minn heittelskaði ætlar að hreinsa hana og styrkja. Eftir meðferðina ætti hún að verða eins og nýhreinsaður hundur :haha::haha:  Spurning hvernig það kemur til með að ganga, kannski ég skutli í eins og eina köku handa honum svo meðferðin gangi betur:!::!:

Góða helgi :lol:

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.01.2010 19:33:07 / Jóhanna

Jæja þá hefur enn eitt árið.....

stimplað sig inn og við sem erum svo heppin að geta notið þess sem lífið hefur uppá á bjóða ættum að vera þakklát fyrir það :lol:

Eftir sældarlífið síðustu dagana er ræktin farin að hljóma eins og himnaríki. Ég verð nú samt að játa að ég hef ekki komið því í verk að mæta þangað í meinlætalífi síðustu daga, en það er ekki langt í það. :evil::evil::evil:  Nokkrir göngutúrar hafa komið í staðinn og ekki var það nú slæmt.

Mataræðið verður tekið í gegn og það kemur ekki til af góðu. Var með ákveðnar áætlanir í gangi á því sviði en nú þarf að gera enn róttækari breytingar :$:$:$ Spennandi og töluverð ögrun þar sem ég ræð því ekki alveg  hvað ég borða í vinnunni a.m.k. ekki í hádeginu. Þá er bara að taka sig saman í andlitinu og gæta betur að hinum máltíðunum, er það ekki bara ;););) 
Engin bein áramótaheit voru strengd en ýmsu lofað svosem, sei sei sei já :haha::haha:

Gleðilegt, hamingjuríkt og heilsugott nýtt ár er mín áramótakveðja til ykkar elskurnar mínar.

Njótið nú síðustu frídagana krúttin mín, það ætla ég að gera :klikk::klikk:


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.12.2009 17:11:09 / Jóhanna

Blessuð jólin....



að detta inn enn einu sinni. Ekki laust við að frúin sé dösuð eftir síðustu vinnudagana enda blessuð börnin að tapa sér. Allir orðnir svo spenntir og ekki laust við taugatitring hjá mörgum. Annars eru mörg börnin komin í jólafrí og því fremur fámennt en því fjörugra, þau alhressustu mættu nefninlega samviskusamlega. Ætla að nota næstu daga vel og slaka á og safna kröftum. Flott að fá tvær svona langar helgar.
 
Allt að verða tilbúið á mínum bæ. Hangikjötið sýður og heimalöguð dönsk lifrarkæfa komin í kæli. Mmmmm get ekki beðið eftir að smakka hana.

Lentum reyndar í smávægilegu óhappi í dag þegar neðri baðskápurinn losnaði af festingunum sínum en minn harðduglegi og ofurflínki eiginmaður  var nú ekki lengi að bjarga því, til bráðabirgða reyndar. Tryggingarnar greiða víst fyrir nýjan skáp þannig að við höfðum vit á að láta vita og senda myndir. Eigum von á matsmanni milli jóla og nýárs. Ekkert annað skemmdist samt, enginn leki gerði vart við sig þannig að við erum í sæmilegum málum, í bili a.m.k.

Síðan mín náði þeim merka áfanga í vikunni að telja 50 þúsund lesendur. Býsna ánægð með það þó ég viti nú minnst um hverjir það eru sem lesa þetta sprok.

Að lokum óska ég ykkur friðsællar jólahátíðar, gleði og hamingju á nýju ári,
Farið að öllu með gát og reynið að komast út að ganga á milli máltíða, það breytir miklu.


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2009 21:08:05 / Jóhanna

Ekki laust við....

að frúin sé ofurlítið döpur þessa dagana...en örvæntið ekki kæru lesendur, það gengur fljótt yfir.
Málið er að ég hef ekki unnið svona mikið í kringum jólin í háa herrans tíð. Síðustu 10 árin hefur vinnan mín tengst grunnskólum að mestu og þeir sem til þekkja vita að þar fá starfsmenn og kennarar gott jólafrí. Nokkuð sem er öllum nauðsynlegt, ekki síst þeim sem vinna með fjörugum krökkum. Núna er staðan hins vegar sú að gamla konan fær ekkert hefðbundið jólafrí þar sem ég vinn á öðru skólastigi. Var nokkuð blúsuð í gær af þessu tilefni en verð víst bara að bíta í það gallsúra jólaepli að .þurfa að vinna  síðustu dagana fyrir jól og milli jóla og nýárs. Samgleðst öllum sem fá þetta langþráða og mjög svo verðskuldaða frí. Ég ætla að vera í þeim sporum að ári....ekki spurning :!:

Annars  allt gott bara....stutt í blessuð jólin :d Öll innkaup að baki, bara indæl heimavinna eftir. Ætlum að skreyta á morgun, baka blessaða svanina, sem fara á jólasúpuna, sjóða rauðkálið og pakka inn gjöfum. Svo stendur til að hitta saumóskvísur í bænum eftir helgi.
Gleði...gleði :p:p:p



» 0 hafa sagt sína skoðun

08.12.2009 18:00:49 / Jóhanna

Jólaundirbúningur...

er í fullum gangi á mínum bæ.....en allt í rólegheitum samt. Bloggsíðan m.a.s.  komin í jólafötin. Ekki mér líkt að ana að hlutunum. Þetta hefst allt saman með góðri skipulagningu, ekki síst núna þegar ég er í svona mikilli vinnu :d:d  Má samt ekki gleyma sjálfri mér og því að ég er ekki 25 ára lengur (er mér sagt)  Um síðustu helgi tók ég t.d. eldhúsið í gegn, þreif innréttinguna og glugga, skipti um gardínur og fleira og uppskar strengi og þreytu dauðans. Notaði tröppu og var eins og farlama gamalmenni á sunnudagskvöldið. Betra að fara varlega. Get samt ekki hugsað mér annað en að þrífa eldhúsið mitt vel fyrir jólin. Klikkun :!::!:  já ég veit :klikk::klikk:  Eiginmaðurinn betri en enginn þegar kemur að ýmsu jólaverkum, bara hið besta mál ;)  

Mér tókst loksins að breyta matseðlinum fyrir aðfangadag, aðalrétturinn sem hefur verið heilagur síðustu 22 árin fær frí og nýr réttur kemur í staðinn. Heimilisfólkið (yngri kynslóðin) tók ótrúlega vel í þetta, sem kom skemmtilega á óvart. Fyrir nokkrum árum reyndi ég en þá var þessum elskum ekki haggað :$:$ Forréttur og eftirréttur verða óbreyttir :p 

Synirnir hafa verið í prófum s.l vikur, mikið er ég fegin að standa ekki í því stússinu núna, kannski seinna. Hver veit hvað mér dettur í hug :d:d

Njótið lífsins á aðventunni, elskurnar mínar Kveikið endilega á kertum þegar heim er komið og ekki gleyma að setjast niður með smáfólkinu spjalla eða/og gera eitthvað skemmtilegt með þeim. 

c097.gif image by augp



» 0 hafa sagt sína skoðun

30.11.2009 17:55:29 / Jóhanna

Jóla, jóla, jólaskap.....

er komin í svona líka  flott jólaskap :!::!: 

Við gömlu hjónin skruppum í Borgarfjörðinn um helgina og má segja að ég hafi sótt jólaskapið þangað ásamt helling af orkunni góðu sem er svo gott ná sér í þar. Ég næ a.m.k. að hvíla mig vel þar og hlaða mig uppá nýtt. Þegar við komum heim í gær var driið í því að þrífa stofugluggana að innan og hengja upp skraut. Georg Jensen óróarnir  fóru upp, kertaskreytingar og  aðventukransinn. Kveiktum á fyrsta kertinu, sem er  spádómskertið. Sería var sett út á stofusvalir :d:d  Eldhúsið og fleiri herbergi bíða svo betri tíma. 
Heilmikið um að vera í vinnunni líka, krakkarnir á leikskólanum alveg að missa sig yfir dagatölum með súkkulaði og ég veit ekki hverju, vona nú samt að foreldrar sendi ekki börnin sín með súkkulaði í maganum í leikskóla/grunnskóla á morgnana, það má alveg bíða þar til skóla lýkur á daginn :evil::evil:

Held ég sé að átta mig á því aftur  hvernig á að njóta desember, það gleymdist þegar frúin var í háskólanáminu og í fyrra var ég enn í skólagírnum og þvældist mest fyrir  sjálfri mér. Fannst alltaf eins og ég væri að gleyma einhverju hehehehe :haha::haha:

Í þessari viku ætlum við hjónin að skella okkur á Aðventutónleika hjá KK og Ellen og svo er komið að  jólaklippingu og strípum ;) 

Svo má ekki gleyma að kveikja á kertum, fá sér gott kaffi og njóta þessa yndislega árstíma. Mæli með því að þið gerið það líka :0) Jólagleðin  kemur innanfrá, hana er ekki hægt að kaupa.


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.11.2009 22:01:48 / Jóhanna

Er að detta í jólagírinn.....

það eina sem vantar er smá jólasnjór. Víða komin upp jólaljós sem er bara gott mál.

Við hjónin kíktum s.s. í bæinn í dag, fyrsti jólagjafaleiðangur ársins. Tókum stefnuna á miðborgina, ekki annað hægt þegar veðrið er svona ljúft. Hæpið að húka í hringlum, táralindum og krepputorgum, geymum það þar til frost fer að bíta kinn.

Kíktum í Kokku, Kúnigúnd og Kraum þar sem 3 jólagjafir voru keyptar (ekki viljandi gert að velja bara verslanir sem byrja á K ;0) Þó ég sé skipulögð þá er ég ekki alveg svona slæm :klikk::klikk:
Enduðum á Te og kaffi/Eymundson á Skólavörðustígnum. Alltaf svo ljúft að kíkja þangað.
Er bara býsna ánægð með afrakstur dagsins. Hef nú aldrei verið lengi að kaupa jólagjafir, en verð að játa að eftir því sem synir mínir eldast þá verður erfiðara að finna hentugar gjafir handa þeim. Það bíður betri tíma.

Þarf að skipuleggja mig mjög vel fyrir þessi jól, er í meiri vinnu en ég er vön og ekkert jólafrí þar sem hægt að redda sér fyrir horn :evil:  Æi, það verður bara að hafa það :$

Svo er það ein samviskuspurning:

Sparkaðir þú í rauðhærða manneskju í gær ???
Ef svarið er NEI = Gott hjá þér :lol:   JÁ = Skammastu þín :s

Kúrið og knúsist, kveikið á kertum og njótið lífsins í skammdeginu :d





» 0 hafa sagt sína skoðun

15.11.2009 17:49:26 / Jóhanna

Í tilefni dags íslenskar tungu....

Í hádegisfréttum RUV...í dag sunnudag,  var lesin býsna merkileg frétt, sem vakti athygli okkar hjóna, þar sem hún snertir okkur beint.  Þar komu fram áhyggjur íslenskrar málnefndar varðandi kennaranám á menntasviði H.Í. Áhugasamir geta fundið fréttina á vef RUV www.ruv.is

Sjálf skipulagði ég mitt nám í KHI að mestu út frá íslenskukennslu, flest mín valfög tengdust kjörsviðinu og þá valdi ég þau námskeið sem mér fundust spennandi og tengdust beint bókmenntum og kennslu. Tæpur helmingur eininga voru tengd íslenskukennslu  beint eða 40 einingar af þeim 95, sem ég lauk,. Þar við bætast  einingar í vettvangsnámi sem tengjast íslenskukennslu. Miðað var við að  nemendur kláruðu 90 einingar að lágmarki til B.Ed.gráðu. Þetta var "gamla kerfið" sem nú er að detta út.

Þegar nemendur velja sér kjörsvið ættu þeir að velja það sem vekur áhuga þeirra, s.s. myndlist, dönsku, textilmennt, heimilisfræði eða hvað annað það sem stendur hjarta þeirra næst því þá er ekki loku fyrir það skotið að viðkomandi finni sig best í kennslu í einmitt því fagi.

Eitt af því sem ég hef  rekið mig á er að sumir skólastjórnendur eru alls ekki með það á hreinu að best sé að velja kennara til kennslu af viðkomandi kjörsviði í stað þess að raða þeim á þau fög sem vantar til að kenna. Sem betur fer eru undantekingar á þessu. Kennari sem lagði t.d. áherslu á tungumálakennslu (ensku og/eða dönsku) í sínu kennaranámi er ekki endilega sá sterkasti til að kenna stærðfræði en væri sennilega betur komin  i sínu fagi. Bara svo ég taki  dæmi.
Mér hefur fundist sem kennsla á unglingastigi sé betur skipulögð þar sem kennarar eru ráðnir í störf samkvæmt kjörsviði þeirra a.m.k. þar sem ég þekki best til og er það til fyrirmyndar.  Kennslan er markvissari og vonandi betri þegar kennarinn þekkir sitt fag.

Ég bíð spennt........því ekkert langar mig meira en að kenna íslenskum unglingum að læra að meta íslenskuna og bókmenntirnar okkar.

Verð að viðurkenna að ég hef ekki kynnt mér nýja kerfið og get því ekki lagt mat á það nám sem í boði er á íslenskukjörsviði í H.Í  Vona  samt að það sé eins vel úr garði gert og  það sem boðið var uppá í gamla Kennó. Jafnvel betra, þvi lengi getur gott batnað. Þar var valinn maður í hverju rúmi og BARA GAMAN :lol::lol::lol:  

Verðum við íslenskukennarar af gamla skólanum kannski eftirsóknarverðir í framtíðinni ??

Til hamingju með daginn Íslendingar :d

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 31
Dagsetning
22. mars 2010
Heimsóknir
Í dag:  24  Alls: 55859
Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Talning
Eftir 101 daga
Sumarfrí
Könnun
Hversu oft ferð þú í ræktina ??
Rækt....hvað er nú það ???
0 atkvæði

Aldrei !
0 atkvæði

Einu sinni í viku
1 atkvæði

2-3 X í viku
1 atkvæði

4-5 X í viku
2 atkvæði

6 X í viku
0 atkvæði

Daglega :0)
0 atkvæði

Oftar, stundum tvisvar á dag
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 4
Heimasíður
Myndir